Sérsmíðað gyllt móttökuborð eftir Preiss Workshop
Hönnun · Framleiðsla · Uppsetning

Innréttingar, skilti og filmur — sérsmíðað og sett upp.

Mosfellsbær — ÍslandEitt verkstæði — mörg fagsvið
01 — Verkstæðið

Fyrir verkefni sem þurfa meira en staðlaða lausn.

Preiss Workshop hannar, framleiðir og setur upp sérlausnir fyrir heimili, fyrirtæki og atvinnurými á Íslandi — frá fyrstu hugmynd að fullfrágenginni framkvæmd.

Við sameinum sérsmíðaðar innréttingar, skiltagerð og ljósaskilti, CNC-fræsun, gluggafilmur, lýsingu, málm og yfirborðsfrágang í eina lausn. Ein ábyrgð frá fyrstu mælingu að lokauppsetningu.

—Hönnun, framleiðsla og uppsetning á einum stað.
—CNC-fræsun, málmsmíði og yfirborðsfrágangur innanhúss.
—Samhæfing við löggilta iðnaðarmenn þegar verkefnið krefst þess.
—Innbyggð LED-lýsing og rafmagnstenging með löggiltum rafvirkja — einn tengiliður.
02 — Þjónusta

Það sem við smíðum, fræsum og setjum upp.

Öll þjónusta →
Þau hafa treyst okkur fyrir verkefnum
Premis
Íslandsstofa
SFS
Colas
Ísbúð Vesturbæjar
Sidekick
Iclean
Ný Ásýnd
Birgisson
Ice Korea
Dýralæknastofa Dagfinns
Tannlæknastofa Brosandi
Eiríksson Brasserie
Eiríksdóttir
„Ég get heilshugar mælt með Tenis. Hann hefur unnið fyrir mig bæði við hönnun og smíði sérlausna fyrir fyrirtækið mitt og heimilið mitt, og útkoman hefur í hvert skipti verið framúrskarandi. Ég treysti honum fullkomlega og myndi án nokkurs vafa leita til hans aftur.“
Jóhann Þór Halldórsson
„Frábær þjónusta, vönduð vinnubrögð og engin vandamál — bara lausnir. Mæli 110% með þessu fyrirtæki.“
Auðunn PálssonVerkefnastjóri fasteignaþróunar · Colas Ísland
„Frábært fyrirtæki, góð þjónusta og allt stóðst upp á 10.“
Guðlaug Ósk ÞórisdóttirSkrifstofustjóri · Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi
„Ég fékk Preiss Workshop í endurbætur heima hjá mér og var mjög ánægður með allt ferlið. Samskiptin voru góð, vinnubrögðin fagleg og verkið vel unnið frá upphafi til enda. Ég get hiklaust mælt með þeim fyrir þá sem vilja vandaða og trausta þjónustu.“
Runólfur V. GuðmundssonEinkaviðskiptavinur
‹
›
04 — Interior filmur

Efnissafn fyrir yfirborð.

Interior filmur eru nákvæm leið til að endurnýja og breyta yfirborðum án þess að rífa allt út. Þær henta fyrir innréttingar, hurðir, húsgögn, veggi, móttökuborð og atvinnurými þar sem útlit, áferð og ending þurfa að vinna saman.

Opna efnissafnið →
05 — Dagbók

Úr verkstæðinu.

Allar færslur →
06 — Ferlið

Frá hugmynd að fullfrágenginni uppsetningu.

01
Mæling
Við skoðum rýmið og tökum mál — eða vinnum út frá þínum teikningum.
02
Hönnun
Þrívíddarlíkan og teikningar til samþykktar áður en nokkuð er skorið.
03
Framleiðsla
Smíði, CNC-fræsun, málmsmíði og rafhúðun á eigin verkstæði.
04
Frágangur
Slípun, lökkun, filmur eða húðun kláruð áður en hluturinn fer út.
05
Uppsetning
Sett upp af okkar fólki; löggiltir iðnaðarmenn tengja rafmagn og lagnir.
07 — Hafa samband

Byrjaðu á teikningum, myndum eða málum.

Sendu teikningar, myndir, mál eða grófa hugmynd. Við förum yfir verkefnið og mælum með næsta skrefi.