Gluggafilmur, glerfilmur og sandblástursfilmur
Næði, mynstur og merkingar á gleri — án þess að loka rýminu.
Gluggafilmur og glerfilmur fyrir skrifstofur, fundarherbergi, hurðir og glugga. Við hönnum og setjum upp sandblástursfilmur, rendur sem veita næði, mynstur, lógó og skreytingar eftir máli og byggjum á reynslu af uppsetningu vínylfilma frá árinu 2012.




Frá lógói að uppsettu gleri.
Þú þarft ekki tilbúna hönnun. Við tökum að okkur grafíska hönnun á glermerkingum frá grunni — þróum mynstur, rendur sem veita næði og merkingar sem passa við rýmið, skerum filmuna og setjum upp. Ein ábyrgð frá skissu að fullbúnu gleri.
Sendu okkur lógó og myndir af rýminu.
Til að byrja hönnun þurfum við vörumerkið á vinnanlegu formi og myndir af glerinu. Við förum yfir efnið og sendum tillögu að útfærslu.
Hver er munurinn á gluggafilmum og glerfilmum?
Heitin skarast. Gluggafilmur geta veitt næði, sól- og UV-vörn eða skreytingu, en orðið glerfilma er oftast notað um sandblástursútlit, mynstur og merkingar á innigleri. Við veljum rétta filmu eftir gleri, birtu og tilgangi.
Hvað er sandblástursfilma?
Hálfgegnsæ filma sem gefur gleri útlit sandblásturs — næði án þess að loka birtuna úti. Hún er skorin í rendur, mynstur eða lógó eftir teikningu.
Getið þið sett lógó eða mynstur á gler?
Já. Mynstur, lógó og merkingar eru skorin á plotter eða prentuð á filmu og sett upp á staðnum.
Henta glerfilmur í fundarherbergi?
Já — það er algengasta notkunin. Rendur eða mynstur í augnhæð gefa næði og halda glerinu léttu, eins og hjá SFS og Íslandsstofu.