CNC-fræsun á verkstæðinu
Þjónusta

Eitt verkstæði, einn tengiliður.

Frá fyrstu skissu að lokauppsetningu — sérsmíði, endurbætur, filmur, hljóðvist, stál og tæknileg útfærsla undir einni verkstjórn.

Við tökum að okkur flókin verkefni og samhæfum fagsviðin sem þau krefjast: sérsmíðuð húsgögn og hurðir, heildarendurbætur, CNC-fræsun, hljóðvist, 3D-hönnun, stálsmíði, filmur, skilti og bílamerkingar. Þú færð einn tengilið frá mælingu að afhendingu.

A

Hönnun og sérsmíði

Svart sérsmíðað borð með gylltum smáatriðumSérsmíði, breytingar og viðgerðir húsgagna
Við sérsmíðum húsgögn og endurmótum eldri innréttingar: lögum hurðir, breytum skápum, bætum við eða fjarlægjum hillur og gefum flötum nýjan lit og áferð.
Sérsmíðuð rennihurð felld inn í innréttinguSérsmíðaðar innihurðir
Sérsmíðaðar innihurðir eftir máli — sérlega háar hurðir, einstakar einkennisdyr, veggfelldar hurðir og rennihurðir með földum rennibúnaði.
CNC-fræsari sker stafi úr dökkri plötuCNC-fræsun og nákvæm framleiðsla
Nákvæmur skurður og fræsun í við, akrýl, samsett efni og málma — þar sem fínleiki og endurtekin nákvæmni skipta máli: mynstruð þil, innfellingar, tæknihlutir og framleiðsluraðir.
Svart stálhandrið með CNC-fræstum eikarhandlistaStálsmíði og málmsmíði
Stálsmíði og málmsmíði eftir máli: grindur, rammar, handrið, húsgagnaundirstöður, festingar og sérhlutir úr stáli, áli og messing.
Þrívíddarprentaðar frumgerðir á prentplötuÞrívíddarlíkön, teikningar og frumgerðir
Þrívíddarlíkön og tækniteikningar fyrir húsgögn, innréttingar, framleiðsluhluti og vöruþróun — með verkfræðilegri útfærslu, 3D-prentun og frumgerðum.
Gullhúðuð HK-veggljósRafhúðun
Rafhúðun á eigin verkstæði fyrir festingar, stafi og skrauthluti — endingargóð málmáferð á sérsmíði.
B

Innréttingar og endurbætur

Fataskápaveggur í gráum tónSérsmíðaðar innréttingar og skápasmíði
Nákvæm skápasmíði fyrir heimili og fyrirtæki — eldhús, fataskápar, baðinnréttingar, geymslulausnir og innréttingar fyrir skrifstofur og verslanir.
Gyllt móttökuborð í atvinnurýmiInnréttingar atvinnurýma
Heildarinnréttingar atvinnurýma á hendi eins teymis: hönnun, sérsmíði, innrétting og uppsetning.
Endurnýjaður stigi með þiljuðum vegg og gráum fataskápumHeildarendurbætur heimila
Heildarendurbætur á húsum og íbúðum undir einni verkstjórn: niðurrif, smíði, innréttingar, flísalögn, múrverk, málun, pípulagnir og rafmagn.
Slétt Clipso-strekkiloft með innfelldum LED-línum og hengiljósumClipso strekkiloft og lýsing
Fullkomlega slétt loft með innbyggðri hljóðvist — ekkert múrverk, engin málning, lágmarks ryk.
Sérfræstir CNC-hljóðvistarpanelar í loftiHljóðvistarlausnir og CNC-panelar
Sérsmíðaðir hljóðvistarpanelar, rimlaklæðningar og form fyrir veggi og loft — teiknað í þrívídd, CNC-fræst og samhæft við lýsingu eða Clipso-hljóðdúk.
Sérsmíðaðar hillur með innbyggðri LED-lýsinguLED-lýsing og upplýst húsgögn
Við hönnum og smíðum húsgögn og innréttingar með innbyggðri LED-lýsingu: upplýstar hillur, skápar, eldhús, speglar, stigar og loft.
C

Filmur og yfirborð

Eldhús klætt dökkri viðaráferðarfilmuInterior filmur
Interior filmur fyrir innréttingar, hurðir og fleti.
Bjart fundarherbergi með stórum gluggumSólarfilmur
Minni glýja, minni hiti og UV-vörn fyrir glugga.
Fundarherbergi með smart film á gleriSmart Film
Rafstýrð glerfilma — gegnsæ eða mött með einum rofa.
D

Skilti og merkingar

Baklýst herbergisnúmer úr málmiSkilti
Sérsmíðuð skilti fyrir fyrirtæki og stofnanir — ljósaskilti, CNC-skorin merki, móttökuskilti og leiðakerfi, úti og inni.
Heilmerktur sendibíll með prentaðri bílafilmuBílamerkingar og vínylfilmun
Bílamerkingar, heilar vínylfilmur og flotamerkingar — hannað, prentað og sett upp með vönduðum kantfrágangi. Við höfum unnið við vínyluppsetningar síðan 2012.
Ferlið

Frá hugmynd að fullfrágenginni uppsetningu.

01
Mæling
Við skoðum rýmið og tökum mál — eða vinnum út frá þínum teikningum.
02
Hönnun
Þrívíddarlíkan og teikningar til samþykktar áður en nokkuð er skorið.
03
Framleiðsla
Smíði, CNC-fræsun, málmsmíði og rafhúðun á eigin verkstæði.
04
Frágangur
Slípun, lökkun, filmur eða húðun kláruð áður en hluturinn fer út.
05
Uppsetning
Sett upp af okkar fólki; löggiltir iðnaðarmenn tengja rafmagn og lagnir.

Byrjaðu á teikningum, myndum eða málum.

Sendu teikningar, myndir, mál eða grófa hugmynd. Við förum yfir verkefnið og mælum með næsta skrefi.