Interior filmur — uppsetning og efnissala
Við endurnýjum eldhús, skápa, hurðir, húsgögn, veggi og atvinnurými með nýjum lit og áferð. Við höfum unnið við uppsetningu vínylfilma síðan 2012 og sérhæft okkur í interior filmum síðan 2018.
Yfir 100 viðar-, stein-, málm- og litaáferðir. Fagleg uppsetning eða efni til kaups fyrir þitt verkefni.





















































































































































Hvað eru interior filmur?
Interior filmur — líka kallaðar arkitektafilmur — eru sjálflímandi filmur með áferð viðar, steins, málms eða lita sem eru lagðar á innréttingar, hurðir, veggi og húsgögn. Þær endurnýja yfirborðið án þess að skipta því út.
Hvar er hægt að nota interior filmur?
Á eldhús- og baðinnréttingar, fataskápa, hurðir, veggi, móttökuborð, lyftur og innréttingar í verslunum og skrifstofum.
Hversu lengi endist filma á innréttingu?
Árum saman þegar undirvinnan og kantfrágangurinn eru rétt unnin. Þess vegna setjum við filmurnar sjálf upp.
Hversu lengi hafið þið sett upp interior filmur?
Við höfum unnið við uppsetningu vínylfilma síðan 2012 og sérhæft okkur í interior filmum fyrir innréttingar síðan 2018. Reynslan skiptir mestu í undirvinnu, hornum og köntum þar sem endingin ræðst.
Get ég keypt interior filmu án uppsetningar?
Já. Sendu okkur áferð, vörunúmer og magn og við staðfestum lager, verð og afhendingu.
Getið þið gert við innréttingu áður en hún er filmuð?
Já. Við getum lagað eða endursmíðað skemmdar hurðir og fleti, breytt skápum og bætt við eða fjarlægt hillur áður en nýr litur og áferð er sett á.
Get ég séð sýnishorn af filmunum?
Já. Sýnishorn af áferðunum eru til á verkstæðinu og hægt að skoða þau eftir samkomulagi — sendu línu með efnisnúmerunum sem þú ert að skoða.