Strekkiloft er dúkur sem er strekktur í prófíla við loftbrún. Það sem gerist ofan við dúkinn ræður útkomunni — og það sýnum við hér, skref fyrir skref, úr stofu og eldhúsi þar sem gamla loftið var klætt borðum.
Borðin voru tekin niður og steinull sett á milli sperranna til hljóðdempunar. Þá var smíðuð timburgrind fyrir lýsinguna — festingar fyrir innfelld og hangandi ljós og brautir fyrir stillanlega kastara — og allt loftið klætt með svörtum undirdúk. Svarti dúkurinn skiptir máli: hann gerir bakgrunninn einsleitan svo ekkert skín í gegnum hvíta dúkinn, hvorki sperrur né lagnir.
Síðan er Clipso-dúkurinn hitaður, strekktur í prófílana og brúnin felld inn með spaða. Útkoman er eitt slétt loft án samskeyta, með hljóðvist sem deyfir bergmál, þar sem ljósin ganga í gegn. Við setjum loftin upp sjálf og kaupum efnið af umboðsaðila Clipso á Íslandi.

